Úff langt langt síðan....
Já vá,frekar langt síðan ég skrifaði inn einhverja færslu á þetta blessaða blogg mitt.
Margt búið að gerast þetta síðasta ár. Ég gekk í gegnum erfiðasta part lífs míns í maí og ég mun aldrei jafna mig alveg,get einungis lært að lifa með þessu. Ég sakna tengdapabba míns daglega og mér finnst erfitt að vita til þess að börnin mín fái ekki að kynnast honum betur,sérstaklega Alla mín sem var ekki nema eins og hálfs þegar hann dó. Við sýnum þeim samt reglulega myndir og segjum þeim sögur af honum. Í gær hefði hann orðið 57 ára.... Það var erfiður dagur.
Annars endaði árið ágætlega. Ég er búin að vera dugleg að koma mér áfram í tónlistinni,en elsku tengdapabbi var alltaf duglegur að styðja mig í henni. Í raun finnst mér ég vera að gera þetta svo mikið fyrir hann,því hann hafði alltaf trú á mér. Ég veit að hann situr við hlið mér og hvíslar hugmyndum af lögum í eyrað á mér,enda hef ég aldrei á ævinni samið jafn mikið af lögum.
Ég er búin að vera að taka upp 2 lög eftir mig,annað sem ég samdi til tengdapabba. Svo hef ég verið að vinna ofsalega mikið með elsku Alan,sem er núna orðinn einn af mínum bestustu vinum,enda yndislegur maður. Við erum búin að halda saman tvenna styrktartónleika og erum dugleg að syngja fyrir hvort annað inn á lögin hjá hvort öðru,auk þess að vera að klára lag saman sem við ætlum að gefa út. Ég er svo að stefna að ýmsu í samb. við tónlistina sem ég vil kannski ekki gefa upp alveg strax....en ég get lofað því að það er allt saman mjög spennandi !!
Í september ákvað ein af mínum elstu vinkonum hún Kristin Ólöf,en við erum búnar að vera vinkonur í 21 ÁR núna, að gifta sig honum Adda sínum. Þetta var yndislegur dagur í alla staði og þau hjúin voru svo yndislega að treysta mér fyrir tónlistinni í kirkjunni og svo fyrir að baka brúðartertuna þeirra. Við vinkonurnar vorum svo með smá uppákomu í brúðkaupinu þeirra og heppnaðist bara frábærlega.
Það besta við allt þetta er það að elsku Kristín mín og Addi eiga von á gullmola,sem kom undir í kringum brúðkaupið þeirra.
Í desember,eða eftir desember,fékk nóg af sjáfri mér og ákvað að gera e-h í mínum málum og fór því í átak Ég sem hélt að ég gæti það ALDREI!! EN ég hef bara verið asskoti dugleg og er búin að missa um 3 kg á 2 og 1/2 viku,sem mér finnst frábært !!! Ég stunda súlufittness og dans 4x í viku og mér líður frábærlega. Ég er hvergi nærri hætt !!

Fyrir (í nóvember 2009)....
og svo 3kg léttari bara 2 og 1/2 viku eftir breytt mataræði.
Elsku börnin mín bara stækka og stækka og Davíð Máni verður 10 ÁRA á þessu ári!! Alla mín varð 2 ára þann 10.jan og Sissa mín verður 4 ára þann 4.febrúar. Mamman á heimilinu varð svo 27 ára þann 4.jan og nálgast nú þrítugsaldurinn óðfluga,ekki það að ég hafi einhverjar áhyggjur af því. Hins vegar þá nálgast maðurinn minn þrítugsaldurinn aðeins hraðar en ég og verður þrítugur þann 2.apríl.
Við eigum svo 3 ára brúðkaupsafmæli í byrjun Júní,ótrúlegt hvað tíminn líður hratt.
Ég held að ég sé búin að segja svona c.a frá því sem stóð upp úr núna síðasta ár og byrjun þessa árs. Þó svo að dagarnir séu búnir að vera bjartir og mikið gott gerst er samt alltaf þessi skuggi sem hangir yfir manni.
Söknuðurinn hverfur aldrei.
Kveðja: Frú Wium.
STYRKTARTÓNLEIKAR
Tónleikarnir verða haldnir á SPOT í kópavogi þann 19.nóv nk. og standa þeir frá c.a 19-22. Það verða ýmsir listamenn sem hafa ákveðið að leggja hönd á plóg,en við Alan löggðum áherslu á að fá frekar minna þekkta listamenn í stað þeirra sem eru alltaf með tónleika.
Við munum bæði koma fram með hljómsveit sem Alan setti saman. Svona er röðin á listamönnunum sem verða með okkur á tónleikunum:
María Magnúsdóttir og gospell kór Jóns Vídalíns
Soffía Karls
Edgar Smári
Ína Valgerður
3 raddir
Kristmundur rappari
Arnar Jóns
Danspör frá DÍH
Bermuda
Ímynd
Kristín Ósk Wium
Alan Jones
Thin Jim and the Casaways
Miðaverð verður 1000kr...en svo eru auðvitað frjáls framlög vel þegin.
Hérna er svo styrktarreikningsnúmerið fyrir þá sem ekki geta séð sér fært um að koma,en vilja hjálpa lítilli hetju:
Reikningur: 0525-15-020106
Kennitala: 020106-3870

________________________________________________________________________
Annars er allt fínt að frétta af mér. Ég er loksins að taka upp tónlistina mína!!! Ekkert lítið ánægð með það. Búin að vera dugleg að finna mér "contacta" í tónlistarlífinu,það skiptir víst öllu. Hann Alan er búinn að vera mér algjör stoð og stytta og hann treður mér í allt, og með allt, sem hann getur. Eftir styrktartónleikana er svo næst á dagskrá hjá okkur að taka upp lag til styrktar brjóstakrabbameini.
Já lífið er bara yndislegt þessa dagana.
Davíð Máni minn varð 9 ÁRA í gær!!! Jámm það eru komin heil 9 ár síðan ég átti hann....jesús minn hvað tímanum líður!!
Það verður svo veisla hérna heima með Halloween þema á sunnudaginn. Við erum búin að kaupa efni í kóngulóarvef,bæði hvítan og sjálflýsandi. Svo fullt af kóngulóm og veggskrauti. Einnig rauðar og grænar ljósaperur. Svo ætlar vinur minn að redda mér þurrís !!! Það verður alveg geggjað flott!!!
Alla mín er orðin svo dugleg að tala og tala og Sissa mín er algjör mega pæja þessa dagana. Þær geta verið alveg svakalegar saman þessar tvær hehe....
En jæja best að fara að plana afmælið betur.
Kveðja: Frú Wium.
Minning

† Guðmundur Ó.Jónsson
Á einungis einu augnabliki
er veröldin hrunin og eftir ég stend
með angist í hjarta og titring í hnjánum
og með svo mikla sektarkend.
Hví ert farinn,og hversvegna núna?
Hvað eigum við öll að gera nú?
Bara ef gætum við faðmað þig aftur
það er enginn annar til eins og þú.
Nú ertu engill og vakir okkur yfir
þú ert hér í anda,það vitum við öll
í draumum okkar þar munt þú dvelja
Að byggja með okkur skýjahöll.
Megi englarnir varðveita sálu þína
og guð okkar geyma þig um ókomna tíð
Ég lofa að reyna að halda áfram að lifa
en í draumum mínum,ég eftir þér bíð.
(Höf.Kristín Ósk Wium Hjartard.)
Þú ert og verður alltaf uppáhalds...
Þín tengdadóttir: Kristín Ósk Wium Hjartardóttir.
Íbúð til leigu!!!
Ég ætla nú ekki að segja mikið,vildi bara skella inn
auglýsingu hérna um íbúðina okkar sem við erum
að fara að setja á leigu.En við erum að fara að flytja
núna í byrjun Ágúst.
Er með 3 herb 96fm íbúð á jarðhæð með palli og
svölum í 220 Hfj til leigu frá 1.Ágúst. Hentug fyrir
barnafólk. Grunnskóli og 2 leikskólar og róluvellur í
2-5 mín göngufæri. Einnig er
verslun,hárgreiðslustofa,sjoppa og gólfvöllur allt í
c.a 10mín göngufæri. Leiguverð c.a 120þús á
mánuði. Áhugasamir hafi samb. í skilaboðum eða á
kristinoskh@hotmail.com
Kveðja: Frú Wium.
Söngvakeppni sjónvarpsins 2009
Kæru vinir,vandamenn og aðrir sem nenna að lesa þessa síðu mína
!!!
Næstkomandi laugardagskvöld,þann 24.jan kl.20:10,mun ég syngja lag Grétars Sigurbergssonar í söngvakeppni sjónvarpsins í beinni á Rúv. Lagið heitir Close to you og er ballaða með pínu jass fíling
.
Fötin sem ég verð í eru eftir íslenskan hönnuð,sem er einmitt hafnfirðingur eins og ég
,og hún heitir Andrea Magnúsdóttir. Skartgripirnir eru síðan frá snillingunum í SIGN.
Þó svo að enginn sé skyldugur til þess að kjósa mig þá þakka ég fyrir allan þann stuðning sem ég fæ
.
Ég hvet hins vegar alla að kjósa það lag sem þeim þykir flottast!
Kveðja: Frú Wium.
P.S Lögin 4 sem keppa næstu helgi verða spiluð á Rás 2 alla vikuna en einnig er hægt að hlusta á þau á www.ruv.is og þar veljið sjónvarpið og þar til vinstri,ef þið skrollið soldið niður,stendur söngvakeppni sjónvarpsins 2009 og þar verða svo öll lögin sem eru búin að taka þátt og taka þátt núna á laugardaginn 
Afmælisbarn
Í dag er yngsta barnið okkar Stefáns EINS ÁRS
!!! Já hún Aðalbjörg Ósk á afmæli í dag og henni til heiðurs (og mömmunar sem átti afmæli 4.jan) verður haldin veisla í dag hérna heima. Það verður opið hús frá klukkan 17 og svo langt frameftir
.
Elsku Alla okkar innilegar hamingjuóskir ár fyrsta afmælisdaginn þinn elsku gullið okkar. Við elskum við mest í heimi.
Kveðja frá mömmu,pabba og systkinum þínum!!!

Síðasta bumbumyndin

Alveg glæný 

Alltaf svo glöð og kát, hálfs árs gömul
Næstum því orðin eins árs...og alltaf jafn glöð 
Jólin búin......
En annars fengum við alveg frábærar gjafir og börnin auðvitað líka. Ég vil þakka alveg kærlega fyrir okkur. Sérstaklega þótti mér gaman að því að maðurinn minn gaf mér nokkrar gjafir,eins og alltaf reyndar. Fyrir utan húfu,sjal,bók,náttkjól og ekta belgískt konfekt fékk ég algjöra snilld! Hann gaf mér nótt á Hilton hótel Nordica á svona lítilli svítu og svo fáum við frítt í lounch-ið á áttundu hæð og svo dekur í spa-inu hjá þeim!!! Ég á besta eiginmann í heimi!!!!!!!!!
Við áttum reyndar að fara 27.des en þar sem allir voru veikir þá breyttum við því og við förum þá 3.jan í staðin og förum heim á afmælisdaginn minn 4.jan. Þetta verður alveg frábært!!! Get sko ekki beðið!!
TAKK ELSKU BESTI EIGINMAÐURINN MINN!!
En við fjölskyldan fórum til læknis útaf þessum blessuðu veikindum og það kom í ljós að við erum öll barkabólgu,ojjjj....
Ég varð síðan að fara þann 29.des upp í stúdíó og syngja Eurovisionlagið inn á disk. Ég hef aldrei á ævinni verið jafn þreytt á sjálfri mér eins og þá! Ég er vön að vilja hafa það sem ég geri,sérstaklega þegar kemur að söngnum,100% en þennan dag gat ég gefið kannski 40-50% af mér....glatað....EN ég fékk lagið í hendurnar áðan og þetta tókst bara furðuvel!! JEI ÉG!!!
Svo muniði bara að kjósa lagið áfram þann 24.jan!
Jæja maðurinn minn var að elda hammara fyrir mig hehe...
Kveðja: Frú Wium.
Það getur verið svo gaman að vera til
Um daginn, eða stuttu eftir styrktartónleikana, fékk ég ofsalega skemmtilegt símtal. Stelpa sem ég þekki var að leita að söngkonu fyrir pabba sinn sem hafði s.s sent inn lag í undankeppni Eurovision. Ég ákvað því að fá að hlusta á lagið og ég var bara alveg ofsalega ánægð og sló því auðvitað til
. Lagið er ofsalega fallegt og er ég því mjög stolt yfir því að fá þetta tækifæri. Ég verð í þriðja þættinum (að ég held) á Rúv,en þetta verður með svipuðu sniði og í fyrra nema ekki eins flókið er mér sagt hehe
. Dagsetning er þá 24.janúar 2009,endilega fylgist með
. En þetta símtal var víst bara byrjunin á skemmtilegheitum því daginn eftir fékk ég annað símtal
. Það var frá ritaranum í Hvaleyrarskóla,en Davíð minn gengur í þann skóla. Guðríður ritari byrjar á því að segja að hún vilji nú fyrst fulvissa sig um það að hún væri að tala við rétta manneskju og spyr mig hvort ég hafi verið í Hvaleyrarskóla....
"Nei" svara ég þá.
"En hefuru einhverntímann sungið inn á plötu?" spyr ritarinn mig.
"Jaaaaá" svaraði ég og er svona að spá í hvert hún sé eiginlega að fara og hvaða plötu hún sé að meina.
"Fyrir Ómar Ragnarsson??" sagði ritarinn þá.
"Haha já" svaraði ég, ekkert smá forvitin.
"Já þannig vill til að hann Ómar hringdi hingað áðan og var að leita að þér, en hann hélt að þú hefðir gengið í þennan skóla.
"Nú nú" svaraði ég hálf gapandi og HISSA!!
"Hann ætlar að hringja hingað aftur eftir smá stund,má ég gefa honum símanúmerið hjá þér??" spyr Guðríður.
"Já ekkert mál,takk fyrir kærlega" sagði ég og kvaddi.
WHAT!!!!!
Stuttu síðar hringdi Ómar svo með þær upplýsingar að hann væri búinn ð leita að mér í mörg ár!!!! En ég breytti nafninu mínu í Kristín Ósk WIUM Hjartardóttir, en hann vissi það auðvitað ekki og fann mig bara hvergi hehe... En allavega þá var hann að fá mitt leyfi til þess að setja lag sem ég söng inn á disk fyrir hann á safnplötu til styrktar mæðrastyrksnefndar og heitir platan Birta-Styðjum hvort annað og fæst m.a á www.tonlist.is . Ég sagði auðvitað að það væri meira en sjálfsagt. Þannig að þið greyin mín eigið eftir að heyra nóg af mér núna á næstunni HAHAHAHA
.
Svo var ég að syngja á tónleikum fríkirkjukórsins, en ég fékk að syngja oggupínupons ein þar. Þetta voru alveg ofsalega vel heppnaðir tónleikar í alla staði. Svo var okkur,kórnum og mökum,boðið af kirkjunni í jólahlaðborð í safnaðarheimilinu og ég hef sjaldan skemmt mér eins vel
. Ef ég á ekki yndislegustu og bestu kórfélaga,kórstjóra og presta í heimi skal ég hundur heita
.
En jæja ég segi bara gangi ykkur sem best með jólaundirbúninginn.
Kveðja: Frú Wium.
Plata til styrktar Mæðrastyrksnefnd
Hljómlistarhópurinn Birta, sem í eru tíu söngvarar, tíu hljóðfæraleikarar og einn laga- og textahöfundur, hefur gefið út á tónlist.is ígildi hljómdisks með níu lögum undir nafninuBirta - styðjum hvert annað. Allt söluandvirðið, hver einasta króna, rennur óskipt frá byrjun til Mæðrastyrksnefndar því að allir flytjendur og aðrir sem koma að þessu gera það endurgjaldslaust.
Meginstef laganna er áhersla á æðruleysi, kjark, trú, samstöðu og gildi lands og þjóðar. Ekkert laganna hefur áður komið út.
Söngvararnir eru Ari Jónsson, Edgar Smári Atlason, Elísabet Ormslev, Halli Reynis, Helga Möller, Kristinn Sigmundsson, Kristjana Stefánsdóttir, Kristín Ósk Hjartardóttir, Ómar Ragnarsson og Ragnar Bjarnason. Hljóðfæraleik annast Einar Bragi Bragason, Erik Quick, Grétar Örvarsson, Gunnar Þórðarson, Jon Kjell Seljeseth, Jón skuggi og Pétur Hjaltested. Hljóðblöndun og stúdíó: Gunnar Árnason, Gunnar Þórðarson, Jon Kjell Seljeseth, Jón Skuggi og Hjaltested.
