Þetta er ég

  • Nafn: Kristín Ósk Wium Hjartardóttir
  • Netfang: kristinoskh@hotmail.com
  • Staður: Hafnarfjörður
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Heimavinnandi húsmóðir og mamma þriggja grislinga
  • Hjúskaparstaða: VEEEEL gift honum Stefáni mínum
  • Um mig: Ég er þriggja barna gift ung "kona" úr Firðinum. Á einn strák og tvær stelpur. Bý með þeim og eiginmanninum mínum og líkar það bara vel. Giftist manninum mínum þann 2.júní 2007, það var alveg frábær dagur :) Ég er búin að vera heimavinnandi frá því að eldri stelpan okkar fæddist, en maðurinn minn vinnur sem verkstjóri hjá Colas. Á mömmu og pabba og tvær systur,elska þau öll alveg fáránlega mikið. Svo á ég yndislega tengdamömmu og æðislega mágkonu. 2 systradætur og 3 mágkonudætur líka og svo auðvitað bestu vini í heiminum!! Svo á ég einn falegan engil á himnum,hann tengdapabba,sem vakir yfrir okkur....Já ég er sko rík....
  • Annað: Finnst skemmtilegast að eyða frítímanum mínum með fjölskyldu og vinum. Nýt þess að sitja við píanóið mitt og spila og syngja.....en þó helst þegar ég er ein. Elska að lesa góðar bækur og er algjör sjónvarpsfíkill ;)

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Atburðarteljari

Atburðarteljari

Leit

Aðalbjörg litla er undrabarn....

20. september 2008 klukkan 22:17
...tja eða allavega svolítið vel á undan í þroska er okkur sagtGlottandi. Við fórum með hana í ungbarnaeftirlitið núna á miðvikudaginn og hjúkkan var alveg ofsalega ánægð með "litlu" dúlluna okkarBrosandi. Hún Alla okkar er voðalega mikið að flýta sér að verða stór. Hún lærði að skríða fyrir c.a einum og hálfum til tveim mánuðum og einnig að sitja alveg sjálf, hef aldrei þurft að setja púða eða neitt fyrir aftan hana því einn daginn settist hún upp sjálf og sat bara hehe... Núna stendur hún upp við alla hluti og labbar líka meðfram, en hún er 8 MÁNAÐA!! Hún reynir líka að standa upp á miðju gólfi ein og óstudd. Stundum sleppir hún báðum höndum og stendur ein og óstudd. Stefán segir að hún eigi eftir að byrja að labba alveg eftir viku,vona að það gerist samt ekki!! Svo kann hún líka að dansa þegar maður segir henni að dansa, frekar mikið sætt. Hún hefur gert þetta frá því að hún var rétt tæplega hálfsárs. Hún dansar við lög og klappar í takt við þau og stundum syngur hún með, en það líkist helst öskri,haha ótrúlega sætt alveg. Hún kann líka að segja 4 ORÐ SKÝRT! Jebbs... Mamma,pabba,afa og amma. Svo kann hún að segja nei með þvi að hrista hausinn, og hún veit alveg hvenær hún er spurð að einhverju eða ekki. Hún skilur alveg ótrúlegustu hluti þó hún sé bara 8 mánaða. Hún og Sissa leika sér líka saman í mömmó. Sissa þykist búa til súpu fyrir Öllu og Alla þykist svo BORÐA hana!! Það er alveg frábært að sjá þær leika sér saman. 

En jæja nú er bara tæp VIKA í reunionið hjá Bugsy Malone hópnumHissa.Tíminn er fáránlega fljótur að líða.... Við í skipulagsnefndinni höfum haft nóg að gera, en þetta er allt búið að vera ótrúlega skemmtilegt. Ég er búin að þurfa að hringja í og tala við helling af fólki sem ég hef hvorki heyrt í né séð í næstum 10 ÁR!! Hringdi í Baltasar um daginn og hann tók alveg frábærlega í allt þetta reunion dót og ætlar að MÆTAUllandi. Svo er fleira gott fólk búið að boða komu sína s.s producentar,framkvæmdarstjórar,hárgreiðslu og leikgerfafólk,sviðsmenn og sýningarstjóri og miklu miklu fleirri. Auk þess koma c.a 30 af 32 leikurum, en þessir sem ekki koma eru ekki á landinu. Ég allavega get ekki beðið ég er svooooo spennt!!!

En jæja ætla að fara að kúrast upp í sófa með eiginmanninum, fáum ekkert of oft að gera það Glottandi

Kveðja: Frú Wium.

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...